Atli Eðvaldsson féll frá í dag eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Atli var einn besti knattspyrnumaður sem þjóðin hefur átt. Þá vann Atli eitt mesta íþróttaafrek knattspyrnumanns þegar hann skoraði 5 mörk í leik í Þýskalandi. Flaug síðan til Ísland til að spila fyrir þjóð sína og skoraði þar líka. Fjölmargir minnast Atla með hlýjum orðum á samskiptamiðlum. Þannig segir Hallgrímur Helgason rithöfundur:
„Hann var alltaf svo háreistur og hugprúður, hann Atli. Farðu vel inn í flóðlýsta nóttina. Og takk fyrir okkur.“
Þá deilir Eiríkur Firry Sigurðsson fallegri sögu um Atla sem sýnir vel hvernig hann var innréttaður. Við gefum Eiríki orðið.
„Atli Eðvaldsson hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðan hann heimsótti mig 7 ára gamlan á sjúkrahúsið á Sauðárkróki, eftir að ég var keyrður niður á leiðinni á fótboltaæfingu.
Hann færði mér landsliðstreyju númer 13 og áritaðan bolta frá ungmennalandsliðinu sem ég á að sjálfsögðu bæði ennþá og hef passað vel uppá í rúm 23 ár. Hvíldu í friði.“