Svona urðu allir frægu söngtextarnir til

Það leiddist væntanlega engum sem horfði á viðtalsþáttinn Mannamál á Hringbraut í gærkvöld en þar fór helsta textaskáld Íslendinga, Þorsteinn Eggertsson á kostum í gráa stólnum gegnt Sigmundi Erni.

Þorsteinn fór yfir ferillinn frá því hann var sjálfur Presley Íslands á uppgangstímum sveitaballanna þegar, að hans sögn, vaðið var í kvenfólki og brennivíni og  skemmtanirnar sem fylgdu spileríinu stóðu vel fram á næsta dag, skrautlegar flestar hverjar.

Hann rak sögurnar að baki mörgum frægustu söngtextum sínum sem eru vel á sjöunda hundrað, takk fyrir, en þeirra á meðal eru Þrjú tonn af sandi, Það blanda allir landa, Er ég kem heim í Búðardal og Ástarsæla sem flestir ef ekki allir muna eftir í einstökum flutningi Shady Owens þar sem hún biður unnustan um að leggja aftur augun sín skær.

Það var sannkölluð sagnastund í Mannamáli gærkvöldsins og látið vaða á súðum sem aldregi fyrr.

Þátturinn er endursýndur í dag og annaðkvöld.