Svona telja þau að þingmenn muni kjósa um þriðja orkupakkann

Í Facebook-hópnum „Orkan okkar: Baráttuhópur“ hafa andstæðingar þriðja orkupakkans rætt áhyggjur sínar síðastliðna mánuði. Sem kunnugt er fer atkvæðagreiðsla um innleiðingu þriðja orkupakkann fram á Alþingi í dag og talið er næsta víst að innleiðingin verði samþykkt.

Í Facebook-hópnum birtir Arnar Loftsson þessa mynd, þar sem líkleg atkvæði þingmanna hafa verið tekin saman:

 \"\"

Aðeins er talið að 11 þingmenn muni kjósa gegn innleiðingunni. Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, er að vísu skráður sem jákvæður í garð þriðja orkupakkans en hefur látið hafa eftir sér að hann hyggist ekki samþykkja innleiðinguna, auk þess sem Björn Leví Gunnarsson er óákveðinn. Þá er talið að einhver hluti þingmanna muni sitja hjá í atkvæðagreiðslunni.

Í orðræðu um þriðja orkupakkann hafa andstæðingar hans kallað fyrirhugaða samþykkt á innleiðingu hans landráð og því er brugðið á það ráð að nefna einnig sérstaklega þá þingmenn sem kusu með IceSave á sínum tíma, og ýjað að því að þau atkvæði hafi líka talist til landráða.