„svona háttsemi er með öllu ólíðandi“

„Það er með öllu óskiljanlegt hversu oft ökumenn reyna að troða sér fram hjá lokunum í umdæminu og skiptir þá engu þótt um vettvang slyss sé að ræða.“ Þetta segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Bendir hann á að bílstjórar verði að virða lokanir þar sem oft eru alvarleg slys sem gerast og verða viðbragðsaðilar að geta athafnað sig án þess að hafa áhyggjur af umferð í kring. 

„Þetta var því miður raunin enn eina ferðina  í gærdag, en þá var lögreglan kölluð til vegna umferðarslyss á mótum Sogavegar og Austurgerðis, rétt norðan Bústaðavegar. Þar var bifreið ekið á barn á reiðhjóli og strax ljóst að um alvarlegt slys var að ræða. Setja þurfti upp lokun á Bústaðavegi vegna þessa svo m.a. væri hægt með öruggum hætti fyrir viðbragðsaðila að athafna sig á vettvangi. Þrátt fyrir ökutæki lögreglu á staðnum, bæði bílar og bifhjól með blikkandi ljós, freistuðu ökumenn þess að troða sér fram hjá og tókst einhverjum það uns þeir urðu að nema staðar beint við slysstaðinn. Svona háttsemi er með öllu ólíðandi og hinir sömu þurfa að hugsa sinn gang, því varla vill nokkur maður skapa frekari hættu á vettvangi þar sem þegar hefur orðið slys,“ segir Gunnar.