Hringbraut greindi frá langri bið Gunnars Smára Egilssonar, fyrrverandi fjölmiðlamanns og stofnanda Sósíalistaflokksins, þegar hann hringdi í Arion banka og hugðist ná tali af þjónustufulltrúa.
Gunnar Smári hafði beðið í 20 mínútur en á þeim tíma komist úr því að vera númer 14 í röðinni í að vera númer 10 í röðinni. Hann gagnrýndi þjónustu bankans og benti á að bankarnir, heilt yfir, græði milljarða króna á ári en á sama tíma ráði þeir varla við einfaldan hlut eins og símsvörun.
Gunnar Smári birti svo uppfærslu á biðinni eftir að hann náði loksins í gegn.
„Það var svarað eftir 40 mín. Eða ekki. Það slitnaði símtalið. En svo hringdi yndæl kona úr bankanum og greiddi úr vanda mínum. Þetta er eins og heilbrigðiskerfið, hreint helvíti á biðlistunum en svo verður maður meir yfir hvað fólkið er almennilegt þegar maður sleppur inn,“ sagði Gunnar Smári.