Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, segir frá símtali sem hann átti við Arion banka á Facebook-síðu sinni.
„Á 20 mínútum hefur mér tekist að vinna mig úr því að vera númer fjórtán í röðinni meðal þeirra sem eru að reyna að ná sambandi við Arion banka niður í að vera númer 10 í röðinni. Það er þá um 5 mínútur að þokast upp um eitt sæti. Þetta símtal mun verða 70 mínútur. Þá mun þjónusturáðgjafi svari einfaldri spurningu minni,“ segir Gunnar Smári á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu.
„Bankarnir rukka viðskiptavini um þjónustugjöld á hverra færslu, hvert viðvik, auk þess sem þeir rukka svívirðilega vexti af útlánum en gefa nánast enga vexti á innistæður. Þeir eru reknir með tug milljarða króna hagnaði ár hvert, samanlagt með um 6-7 milljarða króna hagnaði í hverjum mánuði. Án þess að ráða við svo einfaldan hlut sem símsvörun er. Velkomin í alræði auðvaldsins, ráðstjórnarríki nýfrjálshyggjunnar þar sem viðskiptaráð er æðsta ráðið.“