Þeim skarpa þjóðfélagsrýni sem Jónas Kristjánsson er hefur oft og tíðum verið skemmt, en ekki vegna nýjasta viðtalsins við forseta Íslands sem birtist í enn einum fjölmiðlinum um helgina.
\"Ólafur Ragnar Grímsson segir samkvæmt fyrirsögn í Kjarnanum, að forsetinn eigi ekki að haggast í öldurótinu. Samkvæmt því telur hann sig óhæfan til að vera forseti. Hefur nefnilega í þrígang ekki bara haggast, heldur umturnast 180° í öldurótinu,\" skrifar Jónas af sinni vanalegu ritsnilld. \"Fyrst þegar hann strikaði yfir vinstra fylgi sitt og gerðist hægri forseti. Síðan þegar hann strikaði yfir ofsafengið dálæti á útrásarvíkingum í hruninu og gerðist andstæðingur útrásarinnar eftir hrun. Í þriðja sinn þegar hann strikaði yfir ofsafengið dálæti sitt á arabískum furstum og öðrum þriðja heims illmennum og gerðist gamaldags vestrænn,\" skrifar Jónas næsta gáttaður.
Niðurstaða hans er þessi. \"Svona flautaþyrill dugir ekki.\"