Svona fer óveðrið yfir landið

\"Við höfum enga ástæðu til að ætla að þetta sé að fara á einhvern annan veg eins og staðan er núna. Þróunin er sú að það er að bæta í,\" segir Theodór Hervarsson veðurfræðingur.
 
Þetta var haft eftir honum í kvöldfréttum RÚV, en hann sagði þar útlit fyrir að það verði arfavitlaust veður syðst á landinu og í Vestmannaeyjum milli klukkan sjö og níu.
 

Theodór fór yfir veðurhorfurnar landshluta fyrir landshluta í Speglinum klukkan sex. Hann sagði að veðrið á höfuðborgarsvæðinu næði hámarki milli níu og ellefu í kvöld, myndi slá aðeins af um miðnætti en hvessa síðan aftur alveg fram í fyrramálið.

Veðrið á Vestfjörðum og á Snæfellsnesi verður í hámarki um og upp úr miðnætti til klukkan tvö eða þrjú. Þar verður bálhvasst þó veðurhæðin verði ekki jafn mikil og syðst á landinu.

Það verður mjög hvasst í Skagafirði milli klukkan átta og tíu og helst þannig frameftir. Theodór segir ekki sömu teikn í Eyjafirði.

Theodór á ekki von á aftakaveðri á Austfjörðum en segir að hlémegin til fjalla verði mjög hvasst upp úr klukkan tíu eða ellefu. Þar vísar hann sérstaklega til Fljótsdalshéraðs.