Svona féllu atkvæðin þegar þriðji orkupakkinn var samþykktur

Innleiðing þriðja orkupakkans var samþykkt á Alþingi í dag með miklum meirihluta. 46 þingmanna samþykktu þriðja orkupakkann, 13 voru honum mótfallnir og fjórir þingmenn voru fjarverandi.

Þriðji orkupakkinn er safn ESB-gerða sem varða innri markað fyrir raforku og gas innan ESB. Hann er framhald á markaðsvæðingu framleiðslu og sölu á raforku, sem var innleidd hér á landi með fyrsta og öðrum orkupakkanum í gegnum raforkulög árin 2003 og 2008.

Þriðji orkupakkinn felur í sér, eins og hinir tveir fyrri, ákvæði um rétt neytenda og neytendavernd, aðgang að flutnings- og dreifikerfum rafmagns, gagnsæi á markaði, aðskilnað samkeppnisrekstrar (framleiðslu og sölu) frá sérleyfisrekstri (flutningi og dreifingu) og fleira í þá veru.

Sjá einnig: Sauð upp úr á þingi: Sjáðu þegar hróp voru gerð að Þorgerði Katrínu sem svaraði fyrir sig - „Þið hafið framið glæp“

Atkvæði þingmannanna 63 féllu svo:

  1. Helgi Hrafn Gunnarsson: Já
  2. Inga Sæland: Nei
  3. Jón Gunnarsson: Já
  4. Jón Þór Ólafsson: Nei
  5. Jón Steindór Valdimarsson: Já
  6. Karl Gauti Hjaltason: Nei
  7. Katrín Jakobsdóttir: Já
  8. Orri Páll Jóhannsson: Já
  9. Kristján Þór Júlíusson: já
  10. Lilja Alfreðsdóttir: Já
  11. Lilja Rafney Magnúsdóttir: Já
  12. Líneik Anna Sævarsdóttir: Já
  13. Logi Einarsson: Já
  14. Njáll Trausti Friðbertsson: Já
  15. Oddný G. Harðardóttir: Fjarverandi
  16. Ólafur Þór Gunnarsson: Já
  17. Ólafur Ísleifsson: Nei
  18. Óli Björn Kárason: Já
  19. Páll Magnússon: Já
  20. Rósa Björk Brynjólfsdóttir: Já
  21. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: Nei
  22. Sigríður Á. Andersen: Já
  23. Ásgerður K. Gylfadóttir: Já
  24. Sigurður Páll Jónsson: Nei
  25. Jóhann Friðrik Friðriksson: Já
  26. Smári McCarthy: Já
  27. Ingibjörg Þórðardóttir: Já
  28. Álfheiður Ingadóttir: Já
  29. Svandís Svavarsdóttir: Já
  30. Unnur Brá Konráðsdóttir: Já
  31. Willum Þór Þórsson: Já
  32. Þorgerður K. Gunnarsdóttir: Já
  33. Þorsteinn Sæmundsson: Nei
  34. Þorsteinn Víglundsson: Já
  35. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir: Já
  36. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir: Fjarverandi
  37. Þórarinn Ingi Pétursson: Já
  38. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir: Fjarverandi
  39. Andrés Ingi Jónsson: Já
  40. Þorgrímur Sigmundsson: Nei
  41. Ari Trausti Guðmundsson: Já
  42. Ágúst Ólafur Ágústsson: Já
  43. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir: Já
  44. Ásmundur Einar Daðason: Já
  45. Ásmundur Friðriksson: Nei
  46. Bergþór Ólason: Nei
  47. Birgir Ármannsson: Já
  48. Birgir Þórarinsson: Nei
  49. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir: Já
  50. Bjarni Benediktsson: Já
  51. Björn Leví Gunnarsson: Já
  52. Bryndís Haraldsdóttir: Já
  53. Brynjar Níelsson: Já
  54. Guðlaugur Þór Þórðarson: Já
  55. Jónína Björk Óskarsdóttir: Nei
  56. Guðmundur Andri Thorsson: Já
  57. Gunnar Bragi Sveinsson: Nei
  58. Halla Signý Kristjánsdóttir: Já
  59. Halldóra Mogensen: Já
  60. Hanna Katrín Friðriksson: Já
  61. Haraldur Benediktsson: Já
  62. Helga Vala Helgadóttir: Fjarverandi
  63. Guðjón S. Brjánsson: Já

Sjá einnig: Maður með þokulúður reyndi að komast inn á Alþingi – Sjáðu myndbandið