Fjögur fyrirtæki, Glóbus, Mekka, Vífilfell og Ölgerðin Egill Skallagrímsson, bera höfuð og herðar yfir aðra birgja í vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins á nýliðnu ári. Ef rýnt er í tölurnar (% af lítrum) er um hreina fákeppni að ræða.
Þetta á einkanlega við bjór en þar ráða Vífilfell og Ölgerðin yfir 70% markaðarins og skipta honum alveg jafnt á milli sín, Vífilfell er þar með 35,06% markaðshlutdeild en Ölgerðin 35,00%.
Glóbus á um og yfir fjórðungshlut af léttvíni, vodka og viskíi í hilllum vínbúða ríkisins og yfir 44% af öllu koníaki sem selt er í landinu.
Mekka á þriðjunginn af sterkvínsblönduðum drykkjum og rommi og yfir 40% af öllu gini og viskí sem er í boði í þessum búðum hins opinbera.
Þá gín Ölgerðin yfir cider-úrvalinu, á þar 67% af plássi verslananna og flytur inn næstum helminginn af vodka og gini sem í boði er hér á landi.
Staðan er með öðrum orðum þessi:
Umrædd fjögur fyrirtæki eiga 67% af léttvínsúrvalinu, 71% af bjórnum, 73% af cifernum, 92% af rtd, 91% af vodkanum, 97% af gininu, 79% af viskíinu, 47% af romminu og 77% af koníakinu.
Þessar tölur eru ef til vill áhugaverðar í ljósi þeirrar umræðu að verði áfengisala leyfð í matvörubúðum hér á landi hefur orðið vart þeirrar umræðu að þá muni fáar verslanir sjá um sölu þessa varnings, en hér er komið í ljós að fákeppnin er nú þegar til staðar, raunar í boði ríkisins sjálfs, svo rækilega sem þessar tölur tala sínu máli.