Svona átti ríkið að bregðast við falli wow air

Runólfur Ágústsson athafnamaður og fyrrverandi rektor á Bifröst segir að ríkið hafi gert mikil mistök við gjaldþrot WOW Air í vikunni. Eina viðbragðsáætlun ríkisstjórnarinnar hafi snúist um að koma strandaglópum á milli staða þegar ríkið átti í rauninni að grípa inn í með miklu róttækari hætti til að lágmarka tjónið af falli WOW Air. Þetta kom fram í Silfrinu á RÚV í dag.

„Þeir Bandaríkjamenn sem ætluðu að koma hingað í sumar með WOW, í hundruðum þúsunda tali, þeir eiga ekki flugmiða. Þeir geta reynt að finna annað flugfélag eða sleppt því að koma og afpantað gistingu. Og þetta er það sem þeir eru að gera. Ég heyri það frá fólki í ferðaþjónustunni. Tap ríkissjóðs er miklu meira en nemur þessum fimm milljörðum sem falla á atvinnuleysistryggingastjóð,“ sagði Runólfur.

Nánar á

https://www.dv.is/frettir/2019/03/31/kludur-rikisstjornarinnar-svona-atti-rikid-ad-bregdast-vid-falli-wow-air/