Svona á að tryggja eigur í geymslum

Það verður kíkt í marga kima Heimilisins í samnefndum þætti í kvöld, en tryggingarmálin eru þar fyrirferðarmikil, enda sérfræðingar þáttarins í þeim efnum, þau Hafsteinn Esekíel Hafsteinsson og Karlotta Halldórsdóttir frá Sjóvá á meðal gesta að þessu sinni.

Þau ræða við Sigmund Erni um vespurnar sem nú eru að verða áberandi í umferðinni, en þar verða foreldrar og ungmenni að huga að mörgum þáttum svo vel fari í akstri og fyrirhyggjusemi. Þá verða tryggingar á eigum fólks í geymslum utan heimilis teknar fyrir, að gefnu tilefni, en þar er að mörgu að huga, ekki síst því að vera í góðum tengslum við tryggingafélag sitt og upplýsa það um hvað verið er að geyma, hversu mikið og hver áætluð verðmæti eru.

Í þætti kvöldsins fá áhorfendur líka næringaráð og Jón Pétur Hansson frá Raflandi mætir í græjuhornið og fjallar um hljóðstangir - og loks fá áhorfendur leiðsögn í því að skreyta húsakynni sín svo þau megi teljast móðins og smart.

Heimilið byrjar klukkan 20:00 í kvöld.