Sá orðhvati þjóðmálarýnir, Jónas Kristjánsson, sem alla jafna er ófeiminn við að tjá sig um hvaðeina, vandar sjálfum sér ekki kveðjurnar í pistli dagsins og segir það sama gilda um sig og svo margra aðra; hann ofnoti orðið \"svokallað\".
\"Að svokalla hluti er komið í tízku og ég er jafn sekur og aðrir,\" skrifar þessi reynslumikli ritstjóri á jonas.is í dag og kannast við ósómann: \"Orðasamböndin „svokallaður hagvöxtur“ og „svokölluð framleiðni“ eru dæmi um misnotkun mína.\"
Hann segir augljóst að með svoköllun sé fólk að lýsa frati á frumlagið, dissa orðið: \"Sjálfstæðismenn innleiddu tízkuna með tali um „svokallað hrun“ eins og það sé ekkert alvöruhrun,\" bendir hann á og lætur svo forsætisráðherra heyra það: \"Íslandsmetið í svoköllun á Sigmundur Davíð forsætis eins og í öðru skrítnu. Sigraði í síðustu kosningum á vængjum vina sinna í Indefence. Heldur betur hefur sletzt upp á vinskapinn. Svokallaður forsætisráðherra lýsti á alþingi frati á kæra klúbbinn sinn með að kalla hann „svokallað Indefence“.\"