Ofþreytan svo mikil að hún gafst upp

Kulnun í starfi er efni þáttarins Örlögin á Hringbraut í kvöld, en þar segir Halldóra Eyjólfsdóttir, rannsóknarsjúkraþjálfari á Landspítalanum athyglisverða lífsreynslusögu sína.

Halldóra er ef til vill hinn dæmagerða íslenska kona sem fyrir utan að vera í fullu álagsstarfi og sinna þungu heimili tók að sér hvert aukaverkefnið af öðru í félagslífinu, allt þar til hún var einfaldlega \"búin á því\", bæði andlega og líkamlega.

Hún hafði alltaf verið hamhleypa til vinnu og mikil skorpumanneskja og taldi fyrir víst að henni liði ekki vel nema hún hefði nógu mikið að gera; lífshamingjan fælist nefnilega í því að vera allt í öllu: \"Ég hef alltaf átt erfitt með að segja nei og það er, held ég, grunnurinn að mínum veikindum,\" rifjar hún uppi í þætti kvöldsins, en árið 2013 var hún stödd í vinnu sinni upp á spítala er hún lyppaðist niður og kastaði upp inni á klósetti - og hugsaði sem svo; annaðhvort er ég að fá heilablæðingu eða hjartaáfall - og svo leiddi hún raunar hugann að því að fyrst svona væri komið væri kannski eins gott að hún væri einmitt stödd á gjörgæslunni.

Í langan tíma hafði Halldóra glímt við kulnun í starfi án þess að gera sér grein fyrir því, en svimi, svefnleysi og hjartsláttartruflanir ásamt miklum kvíða var upphafið að ofþreytu sem hún glímdi við um langt skeið.

Í viðtalinu lýsir hún því á hispurslausan hátt hvernig hún tókst á við veikindi sín og komst að nýju út í atvinnulífið.

Örlögin eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld.