Svissneski fjárfestirinn David Jakob Blumer hefur keypt tvær jarðir á Austurlandi. Blumer er yfirmaður hjá BlackRock, sem er eitt stærsta fjárfestingafélag heims, sem fjárfesti nýlega í Marel. Jarðirnar Arnaldsstaðir í Fljótsdalshreppi og Eyri eru nú í eigu Aldgate eigna ehf sem er í eigu Blumer. Eignirnar voru keyptar 2017 og 2018 og var kaupverðið tæplega 50 milljónir.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Með jörðunum fylgja fasteignir á þeim og tæplega 40 hektarar ræktaðs lands. Áður hefur komið fram að á fjórða tug jarða á Austurlandi er í eigu breska auðkýfingsins James Arthur Ratcliffe.
Við Búðardalsá á Skarðsströnd hafa svissneskir fjárfestar keypt þrjár jarðir: Hvalgrafir, Hvarfsdal og Tinda. Eignarhald á jörðunum er í gegnum íslenska félagið Búð ehf sem er í eigu svissneska félagsins Búðardalsá AG en það er skráð í Zug kantónunni í Sviss. Morgunblaðið segist hafa heimildir fyrir að eigendur félagsins séu Svisslendingar sem hafa stundað veiðar hér á landi áratugum saman. Þeir eru sagðir hafa gert upp íbúðarhús á Hvalgröfum og stækkað það og noti sem veiðihús þær fáu vikur sem þeir dvelja við veiðar hér á landi á ári hverju.