Sviptingar í kjöri til vígslubiskups

Nokkr­ar svipt­ing­ar urðu þegar til­nefnt var að nýju til kjörs vígslu­bisk­ups í Skál­holtsum­dæmi, en kosningin nú reyndist að mörgu leyti frábrugðin þeirri fyrri sem fram fór á síðasta ári - og reyndist ekki standast reglur kirkjunnar.

Séra Ei­rík­ur Jó­hanns­son í Há­teigs­kirkju fékk flest­ar til­nefn­ing­ar, 51, séra Kristján Björns­son á Eyr­ar­bakka fékk 44 til­nefningr og séra Axel Árna­son Njarðvík, héraðsprest­ur í Suður­pró­fasts­dæmi, varð í þriðja sæti. Kosið verður á milli þess­ara þriggja í mars­mánuði.

Þegar kosn­inga­ferli við vígslu­bisk­up­kjör hófst á síðasta ári fékk Kristján flest­ar til­nefn­ing­ar, 54 tals­ins, Ei­rík­ur fékk 45 og Axel 35. Kristján fær því 10 til­nefn­ing­um færra nú en bæði Ei­rík­ur og Axel bæta sinn hlut. Ákveðið var að end­ur­taka til­nefn­ing­ar og kjörið frá grunni vegna þess að ekki voru all­ir kjör­menn rétt­kjörn­ir.