Svipta ber fyrirtæki ferðaskrifstofuleyfi eftir endurtekið gáleysi

Það er í fyllsta máta eðlilegt að svipta fyrirtæki ferðaskrifstofuleyfi ef þau verða uppvís að endurteknu gáleysi eins og á við í tilviki forkólfa Mountainers of Iceland sem á síðustu misserum hafa ítrekað stefnt kúnnum sínum í voða í óbyggðum Íslands.

Þetta er kalt mat þeirra Jóns Kaldal og Steingerðar Steinarsdóttur sem voru gestir Sigmundar Ernis í ritstjóraspjalli fréttaþáttarins 21 í gærkvöld, en þátturinn er endursýndur í dag. Jón, sem er fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðasins og Steingerður, sem stýrir Vikunni, bæta því svo við að fyrstu viðbrögð forsvarsmanna fyrirtækisins við óförunum hafi verið með algerum ólíkindum, en einnig útskýringarnar eftir á; að halda því fram að veðrið á Íslandi hagi sér eftir klukkunni, að ekki sé talað um löngu boðað óveðrið í efstu öræfum, sé svo kjánalegt í munni fjallaleiðsögumanna að engu tali taki.

Í spjalli Jóns og Steingerðar með Sigmundi Erni er einnig komið inn á bága stöðu bráðavaktar Landspítalans, eftirgjöf löggjafar varðandi sjókvíaeldi við ósa laxveiðiáa og himinskautaferð íslenska handboltalandsliðsins á Sandeyri í Svíþjóð.

Alla þætti Hringbrautar má einnig nálgast inni á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.