Lögmaður manna sem kærðir hafa verið fyrir nauðgun segir að eitt þriggja tóla sem lögregla hafi lagt hald á sé munur sem afi húsráðanda í Hlíðunum hafi átt.
Fram kemur í athugasemd lögmannsins, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, að svipa í eigu afa húsráðanda hafi verið haldlögð af lögreglu í íbúð þeirri í Hlíðunum sem Fréttablaðið hefur sagt að hafi verið búin til nauðgana.
Þetta kemur fram þar sem lögmaðurinn bregst við spurningum á facebook eftir að hann birti mynd af íbúðinni sem lögmaðurinn telur að sýni fram á að aðeins sé um venjulega íbúð að ræða.
„Það að eiga hluti sem tengjast bdsm er ekki refsivert. Það gerir híbýli fólks ekki að húsnæði útbúnu til nauðgana er það? Önnur hver húsmóðir á nesinu á slíka hluti eftir 50 shades of grey,“ skrifar Vilhjálmur annars vegar.
Hins vegar upplýsir hann hvað lögregla hafi haldlagt í íbúðinni: „Lögregla haldlagði þrjá hluti A)Tölvu B) Gamla svipu sem afi húsráðanda átti. C) Keðjur af boxpúða kærða. Annað var ekki haldlagt og íbúðin er að öðru leyti óhreyfð.“
Vilhjálmur hefur fyrir hönd mannanna tveggja kært ungu konurnar tvær fyrir rangar sakargiftir.
Fréttablaðið segist standa við skrif sín og verður að óbreyttu dregið fyrir dómstóla að sögn Vilhjálms, nema blaðið dragi frétt sína til baka.
Þá hefur lögmaðurinn sagt að allir þeir sem dreifðu myndum að meintum gerendum verði sóttir til saka.