\"Það gæti orðið tiltölulega lítil breyting á veðurfarinu næstu 10 til 20 árin,\" segir Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og er ekki frá því að ýmislegt bendi til þess að hlýnun jarðar hafi hægt á sér.
Þetta kemur fram í DV í dag sem ræðir við fyrrverandi veðurstofustjórann í tilefni af rannsóknum breskra vísindamanna sem telja að næstu tvö ár á jörðinni verði þau heitustu hingað til. Ein af ástæðum þess séu aukin gróðurhúsaáhrif.
Páll rengir ekki þá vísindamenn, enda hafi veður farið hlýnandi frá því um 1980 og fram undir síðustu aldamót hafi hlýnað mjög mikið, en svo hafi hitinn að mestu staðið í stað: \"Síðustu ár eru með þeim allra hlýjustu, en hlýnunin hefur hægt verulega á sér, meira heldur en spáð var,\" segir Páll í blaðinu og telur að hér sé um ákveðna endurtekningu að ræða frá því um 1940 en þá hafi farið mjög hlýnandi uns smám saman fór aftur að kólna fram undir 1980.
Páll segir mjög erfitt að spá fyrir um loftslagsbreytingar en telur að menn ættu að vera viðbúnir því að fyrst muni hægja á hitanum og svo muni hann aukast síðar meir: \"Það þarf að minnka þessa miklu jarðefnanotkun í orkunni til að vinna á móti þessari hlýnun,\" bendir Páll á í samtali sínu við DV í dag.