Svindlað með fiskafurðir

Sjáv­ar­af­urðir eru meðal þeirra mat­væla sem mest er svindlað með en vöru­svik í við­skiptum með mat­væli er stórt alþjóð­legt vanda­mál, sam­kvæmt sér­fræð­ingi Mat­ís. Rann­sóknir benda meðal ann­ars til þess að teg­unda­svik eigi sér stað með um þriðj­ung sjáv­ar­af­urða sem seld eru í mörgum af helstu við­skipta­löndum Íslend­inga. 

Í grein sem Jónas Rúnar Við­ars­son, sér­fræð­ingur um örugga virð­is­keðju mat­væla hjá Mat­ís, skrifar og birtir á vef­síðu Matís segir hann að hér sé um að ræða mikið hags­muna­mál fyrir íslenska fram­leið­endur þar sem íslenskt sjáv­ar­fang eigi í sam­keppni við „svikin mat­væli“, auk þess sem „svikin mat­væli“ séu hugs­an­lega seld sem íslensk fram­leiðsla.

Fimmta ráð­stefnan í tengslum við verk­efnið Food­In­teg­rity var haldin í Nantes í Frakk­landi um miðjan nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Á ráð­stefn­unni voru kynntar nýj­ustu rann­sóknir og lausnir til að takast á við mat­væla­svik. Þátt­tak­endur voru rúm­lega 300 tals­ins, frá 40 lönd­um. Í tengslum við verk­efnið var fram­kvæmd könnun víðs­vegar um Evr­ópu þar sem farið var í fjölda veit­inga­húsa og sýni tekin til teg­unda­grein­ing­ar, með erfða­grein­ingu. Íslensku veit­inga­stað­irnir sem lentu í úrtak­inu komu ekki vel út, sam­kvæmt Jónasi Rún­ari. 

Nánar á


https://kjarninn.is/frettir/2019-01-14-svindlad-med-fiskafurdir/