Svínað á verkamanni og svikið undan skatti

Verkamaður sem starfaði á stórbýlinu Þverholtum á Mýrum í Borgarbyggð mátti leita til stéttarfélags til að fá greidd lágmarkslaun vegna vinnu á lögheimili Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram í frétt DV í dag.Þá kemur fram að verkamaðurinn hafi fengið greidda dagpeninga til að hækka laun – sem þó náðu ekki lágmarkslaunum – þvert á reglur um dagpeninga. Slíkt flokkast undir undanskot frá skatti og er ekki heimilt. Í þriðja lagi kom á daginn að iðgjöld mannsins höfðu ekki verið greidd.

Ásmundur Einar og eiginkona hans, Sunna Birna Helgadóttir, áttu lögheimili á bænum þegar maðurinn vann við búið. Sunna er einnig prókúruhafi og stjórnarmaður Þverholtabúsins ehf. sem heldur utan um rekstur kúabúsins. Daði Einarsson eigandi búsins og faðir Ásmundar segir við DV að málið megi rekja til bókhaldsmistaka. Öllum starfsmönnum hans sé greitt samkvæmt kjarasamningum. Daði skrifar bókhaldsmistökin sem hann kallar svo á KPMG.

Nánar á

https://kvennabladid.is/2016/08/12/svinad-a-verkamanni-og-svikid-undan-skatti-a-logheimili-asmundar-einars-dadasonar/