Svínabóndi svarar fyrir sig

Ingvi Stefánsson svínabóndi í Teigi/Pálmholti hefur skrifað ítarlegan pistil á fésbók þar sem hann reifar sjónarmið svínabænda vegna umfjölllunar um bágan aðbúnað dýra undanfarið.

Ingvi á tvö svínabú og lýsir í pistli sínum erfiðri baráttu við að leggja út í fjárfestingar sem svo úreldist reglulega vegna þess að reglugerðir taki breytingum og ný viðmið um aðbúnað séu sett.

„Það sem mér finnst jákvæðast er að allar gyltur skulu hafðar í lausagöngu og básahald verður að mestu leyti aflagt. Þetta skref var löngu orðið tímabært enda hefur svínaræktin hérlendis tekið gríðarlegum framförum í kynbótum á síðustu 10-15 árum. Ein afleiðingin af því er því sú að gylturnar okkar eru orðnar stærri og þurfa því meira pláss en áður. Til að taka tillit til þessa ákvað ég að hafa 15% af básunum stærri en lágmarkskröfur gerðu ráð fyrir. Eftir á að hyggja þykir mér svekkjandi í dag að ég hafi ekki verið framsýnni árið 2008 og farið meira með gyltur í lausagöngu en lög gerðu ráð fyrir. En það er víst auðvelt að vera vitur eftir á.“

Hann ræðir einni legusár á gyltum og telur tölur um fjölda þeirra stórýktan hér á landi. „RÚV hefur birt myndir af legusárum gyltna (sú ljótasta er reyndar af erlendu búi) ásamt því að birta tölfræði um að tíðni legusára á íslenskum svínabúum sé á bilinu 15-50%. Þetta eru beinlínis rangar tölur og hef ég bæði leiðrétt fréttamann RÚV ásamst starfsmanni MAST hvað þessi mál varðar. Þær tölur sem þarna er vísað til eiga við um gyltuhópa sem eru nýkomnir úr goti og eru vel innan við 10% af heildarhjörðinni.“

Svo skrifar svínabóndinn: „Þá að skýrslu MAST sem fjölmiðlar hafa verið að birta myndir úr. Nú vil ég byrja á því að taka það fram að myndir nr 19 og 22 tilheyra mínu búi og eru hér fyrir neðan. Þetta eru einu myndirnar sem tilheyra mínu búi í skýrslunni. Á fyrri myndinni er um að ræða gyltur í gotbásum sem eru ný orðnir ólöglegir. Þrátt fyrir það tel ég að þessar myndir veiti mínu gyltubúi góðan vitnisburð. Því væri nú freistandi að gagnrýna kollega mína og fordæma þær ljótu myndir sem birst hafa. Engum dylst að aðbúnaður gyltna sem þar er sýndur er óásættanlegur. Ég ætla hins vegar að spara gífuryrðin. Af hverju? Fyrir því eru nokkrar ástæður. Sú fyrsta er sú að þessar myndir eru teknar fyrir meira en ári síðan og ég trúi því og treysti að MAST hafi í samstarfi við viðkomandi bú komið á úrbótum. Önnur ástæðan er sú að í landinu eru á bilinu 3600-3800 gyltur og ég vil ekki alhæfa út frá 5-10 ljótum myndum. Þriðja ástæðan er sú að ég veit að það má eflaust á ákveðnum tímapunktum koma inn á mitt bú og taka myndir sem líta ekki nægjanlega vel út í kastljósi fjölmiðla. Hér má kannski segja að nálgun mín sé „sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum“.

Ingvi Stefánsson ræðir fleiri mál en það var fréttavefurinn 641.is sem fyrst greindi frá facebook-færslu svínabóndans.