Þrjár myndir sem birtar eru í skýrslu Matvælastofnunar eru frá Hýrumel í Borgarfirði. Björgvin Jón Bjarnason, eigandi og framkvæmdastjóri svínabúsins að Hýrumel, hafnar þó að þær myndir sýni of þröngan aðbúnað eða bógsár. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar en lesa má fréttina hér.
Í fréttum Ríkisútvarpsins hefur komið fram að Matælastofnun neiti að upplýsa hvaðan myndirnar komi sem sýna illan aðbúnað. Rúv hefur kært þá ákvörðun.
Fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar að Björgvin vildi ekki leyfa fréttastofu að kanna aðbúnað á svínabúinu sínu. Hann sagðist ekki hafa neitt að fela en ekki væri sjálfgefið að neytendur fái að sjá aðbúnað svína á búinu með aðstoð fjölmiðla.