Svikamylla tengd nafni forsetans

Lögreglan varar við svikamyllum sem auglýsa á samfélagsmiðlum meðal annars með því að nota þekkt nöfn einstaklinga til að ljá auglýsingum sínum trúverðugleika.
 
Jökull Gíslason rannsóknarlögreglumaður segir við ruv.is í morgun að lögreglu hafi tekist að loka svindlsíðu þar sem nafn forseta Íslands var notað. Hann segir mikilvægt að fólk temji sér ákveðna tortryggni í netviðskiptum.
 

\"Þeir sem eru að svindla eru að segja þér að þeir séu að græða fullt af peningum með því að höndla með bitcoin eða annan gjaldmiðil af því tagi. Í raun er engin afurð til. Þeir eru með flottar heimasíður, mikið lagt í auglýsingamyndbönd þar sem þetta fólk varð ríkt yfir nótt því það keypti þjónustuna. Í raun og veru er þetta allt því marki brennt að það er að reyna að fá peninga frá fólki inn og það eru engar líkur á því að fólk fái peninga til baka,“ segir hann við vefinn.

Jökull segir lögregluna ekki vita um marga sem hafi fallið fyrir svindlinu en að þeir séu nokkrir. Hann lýsir ánægju sinni með þá ákvörðun Facebook í liðinni viku að lokað yrði fyrir falskar auglýsingar.