Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð sem sat í starfshópnum sem skrifaði Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið, segir að hópurinn hafi eytt umtalsverðu púðri í að skoða skilvirkni með það fyrir augum að bæta kjör almennings. Kjarninn greinir frá.
Í rannsókn sem Gallup gerði fyrir starfshópinn kom í ljós að 26,4 prósent landsmanna sögðu að það væri hægt að auka traust almennings til bankakerfisins með því að lækka vexti eða bæta kjör. Þessu greindi Kristrún Tinna frá í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut á fimmtudagskvöld.
Hún segir að niðurstaða rannsóknarinnar sé mjög áhugaverð og jákvæð að því leyti að þetta viðhorf sýni að þarna sé eitthvað sem er hægt að vinna mjög markvisst að því að bæta. „Það er erfiðara ef vantraustið skapast bara af einhverjum sögulegum atburðum sem við getum ekki breytt.“
Kristrún Tinna segir það bæði vera í höndum ríkisins og bankanna sjálfra að gera breytingar sem stuðli að bættum kjörum og lækkuðum vöxtum. „Bankarnir hafa verið í miklum hagræðingaraðgerðum og það er klárlega svigrúm að mínu mati til þess að gera enn betur. En við erum ekki að tala um eitthvað einskiptisverkefni sem byrjar og endar og er svo lokið og við erum bara komin með skilvirkt kerfi. Þetta er þróun sem er að eiga sér stað alls staðar í heiminum og flestir stærstu bankar Evrópu hafa það efst á forgangslista sínum að draga úr kostnaði. Ég held að við þurfum klárlega að vinna að því hér á Íslandi líka.“
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér: