Samkvæmt mælum Umhverfisstofnunar í Dalsmára fór svifryksmengun vel yfir heilsuverndarmörk um áramótin. Um tíu leytið í gærkvöldi var mengunin komin vel yfir heilsuverndarmörk og náði svo hámarki í kringum eitt í nótt. Fréttablaðið.is og Mbl.is greina frá.
Fréttablaðið greinir frá því að svifryksmengun hafi verið farin að hækka verulega um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Jókst hún jafnt og þétt þegar líða tók á kvöldið og var mengun vegna svifryks komin yfir heilsuverndarmörk, sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra, á milli níu og tíu í gærkvöldi. Klukkan tíu mældist magn svifryks 73,4 míkrógrömm á rúmmetra. Klukkan eitt í nótt mældist svo svifryk 1.036,7 míkrógrömm á rúmmetra, en það er tæplega 21 sinnum hærra en heilsuverndarmörk kveða á um. Nú undir morgun er svifryksmengun komin aftur niður fyrir heilsuverndarmörk en er enn nokkuð há.
Mbl.is tekur fram að loftgæði samkvæmt mælinum í Dalsmára hafi verið talsvert betri en í fyrra, þar sem líklega hafi verið slegið mengunarmet hérlendis, sem Fréttablaðið segir hins vegar líklegt Evrópumet. Skv. Mbl.is megi telja líklegt að örlítill vindur í nótt á höfuðborgarsvæðinu hafi haft talsvert að segja um það að mengunin hafi mælst minni í ár.