Sviðsmynd þeirra verri en bankahrunið

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Akraness sagði á Þjóðbraut í gærkvöld að málflutningur atvinnurekenda að undanförnu væri nöturlegur. Hann gagnrýndi ýmis ummæli forkólfa Samtaka atvinnulífsins harkalega í samtali sínu við Pál Magnússon: "Menn eru að tala um að 30 til 40 þúsund króna krónutöluhækkun láglaunafólks kalli á 27% verðbólgu, sem aftur þýði 500 milljarða króna hækkun á verðtryggðum skuldum sem að lokum kalli á algert efnahagshrun hjá útflutningsfyrirtækjum," sagði Vilhjálmur og bætti strax við: "Taktu eftir, þetta er verri sviðmynd en sjálft bankahrunið."


Vilhjálmur undrast stórlega hvernig atvinnurekendur hagi sér í aðdraganda kjarasamninga: "Þetta er auðvitað ekki boðlegur málfutningur," segir hann og bendir á að stjórnendur fyrirtækjanna ætli sér helst að njóta sömu prósentuhækkanna og láglaunafólkið, rétt eins og fyrri daginn - og ástæðan sé jafn einföld og áður; á þremur árum þess samningstíma sem aðallinn bjóði geti verkafólk kannski náð til sín nokkrum tugþúsundum í prósentuhækkun sem atvinnrekendur bjóði af rausn en það þýði fyrir venjuleg mánaðarlaun þeirra sjálfra, sem ku vera að meðaltali 2,9 milljónir króna, að þeir hinir betur settu hækki í krafti þessarar sömu prósentuhækkunar um hálfa aðra milljón króna á mánuði á sama tíma.