Íslendingasögurnar – Brot af því besta á 75 mínútum – er sýning á sviði í Hörpu þar sem farin er rússíbanareið í gegnum þjóðararf íslensku fornbókmenntanna. Ólafur Egill Egilsson, leikstjóri og Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona hittu Lindu í Hörpu en þau standa að sýningunni sem er í Norðurljósasalnum. Sýningin er á ensku og aðallega fyrir erlenda ferðamenn.
Lilja Nótt ásamt Jóhanni G. Jóhannssyni leikara þeysast í gegnum 40 Íslendingasögur á sviðinu. Þetta er stórbrotnar sögur af dugandi mönnum og djörfum konum.
Í kynningu segir m.a.“Íslendingasögurnar eru skínandi krúnudjásn íslenskrar þjóðmenningar, raunsannar lýsingar af ofurvenjulegum víkingum sem kljást við við ofurvenjuleg víkingavandamál – Eins og hvernig maður fær konuna sína til að hætta drepa þræla nágrananna, hvernig eigi að bregðast við þegar manni er sagt að stanga rassgarnarenda merarinnar úr tönnunum og hvernig eigi að hefja málaferli við mág sinn fyrir að standa ekki undir væntingum eiginkonu sinnar.
Sögur Hallgerðar Langbrókar, Gunnlaugs Orms-Tungu, Víga-Glúms, Haraldar Hárfagra eru aðeins örfá dæmi um þau “celeb” sem birtast í sýningunni.