Svíar herða löggjöf um innflytjendur

Sænsk stjórnvöld kynntu í gær hertar reglur um móttöku flóttafólks, en mikill fjöldi fólks hefur leitað til Svíþjóðar undanfarin misseri, einkum og sér í lagi á flótta frá stríðshrjáðu Sýrlandi.
 
Þetta kemur fram á fréttaveitu RÚV í kvöld, en þar segir að gert sé ráð fyrir að milli 140.000 og 190.000 hælisleitendur komi til landsins á þessu ári og viðlíka fjöldi á næsta ári.
 
Flóttamannastofnun Svíþjóðar varaði við því fyrr í þessum mánuði, að hún gæti ekki lengur tryggt að allir hælisleitendur fengju húsnæði.
 

Í frétt RÚV segir að Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar hafi komist svo að orði á fréttamannafundi síðdegis í dag að ástandið eins og það væri nú í landinu gæti ekki gengið til lengdar. Önnur Evrópulönd yrðu einfaldlega að taka á móti fleiri hælisleitendum og veita fleiri flóttamönnum vernd. Löfven sagði nauðsynlegt að taka stefnu Evrópusambandsins í málefnum flóttamanna til gagngerrar endurskoðunar.

Löfven, og aðstoðarforsætisráðherran Asa Romson, kynntu drög að tímabundnum lögum, sem kveða á um ýmsar breytingar á móttöku flóttafólks í Svíþjóð. Meðal breytinganna er að fleiri flóttamenn fái hæli tímabundið. Þar til nýlega hefur fólk sem veitt er hæli í Svíþjóð, sjálfkrafa fengið landvistarleyfi til frambúðar. Frá og með apríl á næsta ári, verða það aðeins svokallaðir kvótaflóttamenn sem fá varanlegt landvistarleyfi um leið og þeir fá hæli. Þá á að setja strangari skilyrði fyrir fjölskyldusameiningum; herða kröfur um að fólk geti sýnt fram á framfærslu, vilji það fá aðra fjölskyldumeðlimi til Svíþjóðar; og setja strangari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis af mannúðarástæðum, að því er fram kemur í nefndri frétt RÚV.