Sverrir er látinn: tilfinningavera, ákafamaður, rammpólitískur og lifði hratt

\"\"Sverr­ir Ólafs­son fædd­ist á Bíldu­dal 13. maí 1948. Hann lést á heim­ili sínu í Hafnar­f­irði 30. des­em­ber 2019 71 árs að aldri. Sverr­ir lauk námi frá Myndlista og handíðaskóla Íslands árið 1976 en á ferli sín­um hélt hann fjölda einka­sýn­inga og tók þátt í fjölda sam­sýn­inga hér­lend­is sem er­lend­is. Sverrir var einn okkar fremsti listamaður í sinni grein. Þá tók hann virkan þátt í starfi Alþýðuflokksins og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum.

Sverr­ir ólst upp í Stykk­is­hólmi. Árið 1969 tók hann próf frá Kenn­ara­skóla Íslands og lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1976. Einnig lagði hann stund á nám í málm­tækni og sótti nám­skeið í glerl­ist í Cambridge á Englandi. Hann lagði einnig stund á nám í stjórn­un menn­ing­ar­stofn­ana við HÍ, sótti ýmis mynd­list­ar- og tækni­nám­skeið og fór sem gestal­istamaður og hélt sýn­ing­ar m.a. í Banda­ríkj­un­um, Frakklandi og á Ítal­íu.

Sverr­ir kenndi mynd- og hand­mennt við Víðistaða- og Lækj­ar­skóla í Hafnar­f­irði á ár­un­um 1969-1973 og kenndi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1984-1985.

Sverr­ir hafði vinnuaðstöðu á Kor­p­úlfs­stöðum í yfir ára­tug og tók virk­an þátt í upp­bygg­ingu Mynd­höggv­ara­fé­lags Íslands. Hann var brautryðjandi í upp­bygg­ingu menn­ing­ar­mála í Hafnar­f­irði, var aðal­forsprakki að stofn­un Listamiðstöðvar­inn­ar Straums árið 1988 og veitti henni for­stöðu til árs­ins 2001. Þá hafði Sverr­ir einnig frum­kvæði að stofn­un Alþjóðlega högg­myndag­arðsins í Hafnar­f­irði auk þess sem hann kom að fram­kvæmd Lista­hátíðar Hafn­ar­fjarðar 1991 og 1993.

Sverr­ir tók þátt í fjölda sam­sýn­inga og hélt sýn­ing­ar víða um heim. Verk hans er að finna á fjöl­mörg­um söfn­um hér­lend­is sem er­lend­is. Sverr­ir hlaut fjölda viður­kenn­inga fyr­ir störf sín, m.a. í Mexí­kó þar sem hann starfaði lengi að list sinni.

Sverr­ir var einnig virk­ur á sviði akst­ursíþrótta, tók þátt í fyrstu rallýkeppn­un­um sem haldn­ar voru hér á landi og flutti til lands­ins fyrsta sér­smíðaða bíl­inn í þeim til­gangi.

Sverr­ir var líka virk­ur í stjórn­mála­starfi og gegndi ýms­um trúnaðar­störf­um fyr­ir Alþýðuflokk­inn. Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra og fyrrverandi þingmaður og ráðherra fyrir Alþýðuflokkinn og Samfylkinguna minnist Sverris og segir:

„Sverrir Ólafsson listamaður hefur kvatt þessa jarðvist. Hann lyfti Grettistaki, þegar kom að menningarmálum í Hafnarfirði. Var sannur frumkvöðull. Upphafsmaður listahátíðar Hafnarfjarðar 1991 og síðan aftur 1993, kom í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ á listamiðstöðinni í Straumi og var fyrsti forstöðumaður hennar.

Hann gerði höggmyndagarðinn á Víðistaðatúni að veruleika, sem var afrakstur listahátíðar Hafnarfjarðar 1991. En Sverrir var ekki eingöngu listamaður og athafnamaður. Hann var mannvinur, hugmyndasmiður, sagnaþulur, tilfinningavera, ákafamaður um flest, rammpólitískur og hafði lifandi áhuga á fólki og málefnum líðandi stundar. Hann lifði hratt og fór gjarnan ótroðnar slóðir.

Verk hans munu lifa áfram í minningunni.

Blessuð sé minning, Sverris Ólafssonar.

Útför Sverr­is fer fram frá Hafn­ar­fjarðar­kirkju í dag, 8. janú­ar 2020, og hefst at­höfn­in klukk­an 13.