Sveitasetur sigurðar nú skráð í lúx

\"Nei, ég veit það ekki nákvæmlega,“ segir Jóhannes Þór Ingvarsson, prókúruhafi eignarhaldsfélagsins Rhea ehf., aðspurður um eignarhald fyrirtækisins á sveitasetri í Borgarfirði sem Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, afsalaði sér með dularfullum hætti árið 2011.

Þetta kemur fram á fréttavef Stundarinnar í dag, sem fjallar ítarlega um að frægt og umtalað sveitasetur Sigurðar sé nú komið í eigu félags í aflandsríkinu Lúxemborg í gegnum Rhea ehf. Staðfesting í þá veru komi fram í gögnum um fyrirtækið og ársreikningum sem tengjast því. 

Samkvæmt ársreikningi Rhea ehf. nema eignir þess rúmlega 575 milljónum króna en eina eign þess virðist vera húsið í Borgarfirðinum.