Sveitarstjóri Súðavíkur, Bragi Þór Thoroddsen, komst heldur betur í hann krappan á fimmtudagskvöld þegar hann féll í á og slasaðist. Betur fór en á horfðist en Bragi þarf þó að verða af restinni af gönguhátíðinni sem fer fram í Súðavík um þessar mundir en allt lítur út fyrir að hann þurfi að ferðast innanhúss restina af sumri.
„Þetta var nú bara einfaldlega þannig að ég var úti að labba með hundinn minn, hún er labradortík og hefur gaman að vera í vatni, og ég elti hana út í á. Ég held ég hafi nú ekki verið hætt kominn en ég datt ansi illa, á stein og ofan í svelg og klambraði mig aðeins en komst af sjálfsdáðum upp úr,“ segir Bragi.
Til allrar hamingju meiddist Bragi ekki alvarlega en hann fékk góða aðstoð frá björgunarsveitinni Kofra í Súðavík.
„Ég var nú bara sóttur af björgunarsveitinni Kofra og fór með sjúkrabíl á Ísafjörð. Það var ekkert annað í boði því ég var bara ósjálfsbjarga í rauninni,“ segir hann.
Bragi segir þó að þeir sem ætli sér að taka þátt í gönguhátíðinni í Súðavík þurfi ekki að óttast að fylgja í fótspor hans því göngurnar séu fremur auðveldar og aðgengilegar flestum.
„Það er vissulega rólegra yfir henni en í einhverju svona. Ég held þetta séu nú ekki þannig göngur að við þurfum að hafa afföll af fólki. Veðrið er líka búið að vera frábært.“
Gönguhátíðin í Súðavík var formlega sett í gær með súpukvöldi og brennu og stendur hún yfir fram á mánudag. Bragi segir dagskrána vera sérstaklega sniðna með sóttvarnir í huga en öllum viðburðum sem halda átti innanhúss hefur verið aflýst. Hann segist sjálfur vera brattur þrátt fyrir slysið þótt ljóst sé að hann muni ekki taka þátt í göngunum sem áætlaðar eru.
„Þetta gefur nú ekki möguleika á miklu öðru en að ferðast innanhúss í sumar þegar maður er svona en ég á nú ekki von á að þetta stoppi mig lengi,“ segir Bragi sem kveðst vera óbrotinn en lemstraður og illa tognaður.