Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkuhrepps, segir að áform Sigurðar Inga Jóhannssonar, ráðherra sveitarstjórna, um fækkun sveitarfélaga sé sambærileg því ef Sameinuðu þjóðirnar myndu ákveða að leggja niður Ísland.
Bragi Þór útlistar samlíkingunni á vef Vísisí dag. Þar líkir hann Sambandi íslenskra sveitarfélaga við Sameinuðu þjóðirnar og stóru sveitarfélögunum við öryggisráðið.
„Segjum sem svo að innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, af völdum fastanlandanna Bandaríkja Norður-Ameríku, Stórabretlands, Frakklands, Kína og Rússlands komi fram tillaga um að Ísland og viðlíka smáríki séu of fyrirferðamikil miðað við fjölda og þurfi auk þess alltaf að koma þeim til hjálpar af þeim stóru. Þetta séu óhagstæðar einingar að þjóðarétti og því ekkert annað að gera en að henda Íslandi undir Danmörku (hefð sé fyrir því), en önnur “smáríki” geti bara farið undir nágrannaríki sem séu burðugri,“ segir Bragi Þór.
„Þetta er auðvitað fráleit hugmynd og myndi líkast til ekki fara í gegn þegjandi og hljóðalaust í samfélagi þjóðanna. Samstarfi byggðu á gagnkvæmri viðurkenningu sjálfstjórnar og sjálfstæðis. En þetta er samt eins og vegferðin sem nú liggur fyrir Alþingi í frumvarpsformi.“