Sveitarfélög tapa á ferðamönnum

Vífill Karlsson hagfræðingur segir sveitarfélög á landinu almennt ekki fá auknar tekjur þótt ferðamönnum hafði fjölgað. Vífill ræddi þetta í síðasta þætti Ferðalagsins í liðinni viku 10.maí en hann hefur skoðað áhrif fjölda ferðamanna á tekjur og kostnað sveitarfélaganna.

Hver ferðamaður kostar sveitarfélög að jafnaði 237 krónur í það minnsta og er framlegð í það heila neikvæð hjá sveitarfélögunum, segir Vífill en þó jákvæð í Reykjavík og á Suðurnesjum.

Vífill, sem hélt erindi um málið að nýlegum fundi Stjórnstöðvar ferðamála, vitnar meðal annars í stjórnanda Snæfellsbæjar sem segir „Þrátt fyrir allan þennan fjölda ferðamanna verður ekki vart breytinga á tekjum sveitarfélagsins – bara kostnaðinn“.

Vífill starfar hjá SSV eða Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og er einnig dósent við háskólann á Akureyri.

Fram kom hjá honum að skipta megi sveitarfélögum um í þrennt eftir því hve áhrif ferðaþjónustunnar er mikil. Í fyrsta lagi séu það Ferðamannasveitarfélög líkt og Reykjavík, Akureyri og Bláskógabyggð. Í öðru lagi Ferðamannasnauð sveitarfélög og í þriðja lagi gegnumstreymis sveitarfélög, svo sem Borgarfjarðarhreppur og Snæfellsbær. 

Viðtalið við Vífil má sjá hér: