Sveinn segir auðunn hafa niðurlægt sig: „þetta særði mig djúpt“ – auðunn kærir morgunblaðið

Auðunn Freyr Ingvarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Félagsbústaða kærði Morgunblaðið til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands þann 5. apríl vegna frétta um málefni Félagsbústaða. Greinin birtist hinn 4. mars. Í frétt Morgunblaðsins sagði að mikil óánægja væri á meðal  hluta starfsmanna Félagsbústaða vegna breytinga á starfseminni og almenn óánægja hefði verið með störf Auðuns Freys gagnvart starfsmönnum. Það hafði verið mikil hreyfing á starfsfólki.

Starfsmenn Félagsbústaða í tíð Auðuns Freys hefðu hætt af þremur ástæðum. Í fyrsta lagi fyrir aldurs sakir. Í öðru lagi vegna þess að þeim buðust önnur störf og í þriðja lagi vegna erfiðleika í samskiptum við Auðunn Frey. Þeir hafi verið látnir fara. Auðunn Freyr gagnrýnir í kæru til siðanefndar að blaðamaður hafi ekki haft samband, þrátt fyrir að vera megin umfjöllunarefni fréttarinnar. Þá hafi verið ranglega haft eftir honum „um ástæður starfsloka hans og látið í það skína að ástæður uppsagnar hafi raunverulega verið samskiptavandamál við starfsfólk.

Morgunblaðið birtir í dag viðtöl við tvo fyrrverandi starfsmenn. Sæmundur Ásgeirsson var undir stjórn Auðuns en hóf störf hjá félagsbúðstöðum árið 2000. Var hann í framkvæmdadeild og sinnti viðhaldi.

Segir Sæmundur að eftir að Auðunn Freyr tók við sem framkvæmdastjóri hafi líðan hans farið að versna. Smátt og smátt hafi byggst upp spenna í þeirra samskiptum. Segir Sæmundur að Auðunn Freyr hafi virt ráðleggingar hans að vettugi og jafnframt gert lítið úr tillögum hans. Þá hafi Auðun Freyr ítrekað í vitna viðurvist gert lítið úr sér með oft á tíðum meiðandi spurningum í matsal. Þá sakar hann Auðunn um að hafa niðurlægt hann á starfsmannafundum og það valdið miklu álagi.

„Þetta særði mig djúpt,“

segir Sæmundur á einum stað í viðtalinu.

Vegna þessarar framkomu segir Sæmundur að andlegri heilsu hans hafi hrakað.

„Ég upplifði einhverja breytingu sem ég hef ekki fundið áður. Hélt að ég væri að fá hjartaáfall og fór á hjartadeild Landspítalans. Þetta var kvíði.“

Í kjölfarið fór Sæmundur í veikindaleyfi í þrár vikur vorið 2017. Sæmundur segir:

„Aðalmálið var að mér leið orðið verr og verr í þessu umhverfi. Það byggðist upp verkkvíði. Þetta breyttist frá því að hlakka til að fara í vinnuna í að kvíða fyrir því. Þegar manni er farið að líða þannig rífur það mann niður.“

Sæmundur segist aðspurður líta svo á að framkoma Auðuns Freys kunni að flokkast undir einelti.

„Um leið og Auðun Freyr varð framkvæmdastjóri fór hann að gera lítið úr störfum mínum og ég vil meina að leggja mig í einelti. Mér fannst hann vera að reyna að ýta mér út allan tímann, í þessi 3-4 ár sem ég var þarna eftir að hann kom sem honum tókst svo að lokum meðhjálp lögfræðing.“

Sæmundur hætti störfum og fékk fjögurra mánaða uppsagnarfrest en ekki starfslokasamning og var gert að yfirgefa vinnustaðinn samdægurs. Annar starfsmaður tjáir sig undir nafnleynd í samtali við Morgunblaðið og hafði svipaða sögu að segja. Auðunn hefur eins og áður segir kært fréttaflutning Morgunblaðsins til siðanefndar blaðamannafélagsins. Þá vildi hann ekki koma í viðtal vegna málsins en birtir grein í Morgunblaðinu sem ber heitið Hver er fréttin? Þar hafnar Auðunn ásökunum sem settar eru fram í grein Morgunblaðsins. Hann lét af störfum fyrri hluta árs 2018 en segir að það tengist ekki þeim ásökunum sem settar hafi verið fram í greinum Morgunblaðsins. Í niðurlagi greinarinnar segir Auðunn:

„Síðastliðið haust ákvað ég að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða. Sú ákvörðun tengdist ekki ofangreindum starfsmanna málum enda voru þær aðgerðir sem gripið var til á fyrri hluta ársins 2018 farnar að skila tilætluðum árangri. Með ákvörðun minni vildi ég hins vegar stuðla að sátt um þetta mikilvæga félag og gefa nýrri stjórn svigrúm til að takast á við þær áskoranir sem blöstu við.“