Guðrún Halldóra Vilmundardóttir lenti í alvarlegu slysi þegar hún missti stjórn á mótorhjóli á Kjalvegi í gær.
Sveinn Óðinn Ingimarsson, eiginmaður Guðrúnar, lýsir því við MBLhvernig fjöldi fólks keyrði framhjá slysinu án þess að bregðast við.
„Hjólið er alveg í tætlum og farangur úti um allt, þetta var svolítið eins og flugvél sem hefur brotlent, leit mjög illa út. Ég fer að athuga með lífsmörk og hvort það sé í lagi með hana, hún hafði greinilega fengið mikið höfuðhögg,“ sagði Sveinn. Þeir sem stoppuðu vildu ekki taka Guðrúnu upp í bílinn til að fara með hana á Hveravelli því hún var svo óhrein. Það voru loks þýsk hjón sem fóru með Guðrúnu og Svein á þjónustumiðstöðina á Hveravöllum.
Það blæddi úr eyra Guðrúnar þegar þau koma þangað og á hún erfitt með að anda. Neyðarlínan segir honum að þyrla Landhelgisgæslunnar verði send frá Akureyri til þess að flytja Guðrúnu á sjúkrahús í Reykjavík. Hann sagði staðarhöldurum þar að það þurfi að rýma fyrir þyrlunni.
„Það var bara horft á mig og sagt já. Engin aðstoð boðin, okkur er ekki boðið teppi eða eitt né neitt. Ég spurði svo hvort ég gæti fengið herbergi og sagði að ég gæti borgað fyrir það, það væri ekkert mál, en mér var ekki einu sinni svarað.“
Sveinn segir að erlendir ferðamenn hafi sýnt meiri náungakærleik en Íslendingar. „Svo kemur þyrlan í augsýn og þá loksins er forvitni fólks vakin, þá er allt í einu farið að bjóða okkur aðstoð, tveimur og hálfum tíma eftir að við komum þarna.“