Í gær eftir hádegi var WOW air úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæstaréttarlögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson hafa verið skipaðir skiptastjórar yfir þrotabúi flugfélagsins. Kjarninn greindi frá.
Vaninn er að aðeins einn skiptastjóri sé skipaður yfir þrotabúi en að þessu sinni voru tveir skipaðir vegna stærðar félagsins.
Sveinn Andri sagði í samtali við Mbl.is í gær það vera næsta skref í málefnum hins gjaldþrota félags að birta innköllun til kröfuhafa og að skiptastjórar myndu vinna í gærkvöld og fram á nótt og ráða ráðum sínum. Farið verður í fyrstu aðgerðir í dag.
„Fyrst og fremst er verkefni okkar að kanna fjárhagsstöðu félagsins, hvaða eignir eru og loka öllum endum, samningum o.fl.,“ segir hann.
„Það er ljóst að þetta félag á hvorki fasteignir né flugvélar, það liggur fyrir, en hjá félagi sem er í umfangsmiklum rekstri eru alltaf einhverjir fjármunir, en það er okkar verkefni að fara yfir það,“ bætir Sveinn Andri við. Hann segir að skuldastaða félagsins eigi eftir að skýrast endanlega þegar kröfum hafi verið lýst.