Arion banki hefur óskað eftir að Sveinn Andri Sveinsson lögmaður verði settur af sem annar af skiptastjórum yfir þrotabúi WOW air vegna vanhæfis. Arion banki er einn stærsti kröfuhafi þrotabúsins. Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, staðfesti að bankinn vill losna við Svein Andra en ástæðan er sú að Arion banki er stærsti kröfuhafinn í þrotabúi tölvufyrirtækisins Data Cell en þar er Sveinn Andri einnig skiptastjóri.
Af því verður þó ekki en Símon Sigvaldason, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur segir í skriflegu svari til Ríkisútvarpsins að krafa Arion Banka hafi verið tekin fyrir í gær og þar hafi verið reynt að miðla málum. Lauk þeim fundi á þann hátt að Sveinn Andri verður áfram skiptastjóri WOW air.
Þá segir Símon að aðrir kröfuhafar hafi ekki farið fram á að Sveinn Andri taki pokann sinn.
„Við erum alveg á hvolfi að vinna í búinu núna,“ sagði Sveinn Andri í stuttu samtali við Hringbraut. Sveinn Andri vildi ekkert tjá sig um kröfu Arion banka um að hann segi af sér stöðu skiptastjóra vegna þess sem bankinn telur vera vanhæfi: „Ég hef ekkert um það að segja.“