Sveinbjörn tók málin í eigin hendur: „Forlagið situr á þessu eins og ormur á gulli"

Frjáls og opin ensk-íslensk orðabók er nú aðgengileg á netinu í fyrsta skipti. Orðabókin er hugarsmíð Sveinbjarnar Þórðarsonar, forritara hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Miðeind, sem hefur frá árinu 2007 furðað sig á því að ekki sé almennur aðgangur að ensk-íslenskri orðabók nema á bak við greiðslumúra.

„Forlagið situr á þessu eins og ormur á gulli og heimtar rentu frá öllum sem þurfa að fletta upp enskum orðum,“ skrifar Sveinbjörn á Facebook-síðu sinni um verkefnið. „Þetta er auðvitað til háborinnar skammar því svo gott sem allir Íslendingar, hvar sem þeir eru staddir í lífinu og hversu góðir sem þeir eru í ensku, þurfa á þessum upplýsingum að halda. Þetta eru hreinlega bráðnauðsynlegir tungumálainnviðir.“

Orðabók Sveinbjarnar er aðgengileg á slóðinni Ensk.is og er opin öllum. „If you want something done right, you gotta do it yerself, eins og sagt er,“ skrifar Sveinbjörn.

Færsluna má sjá hér að neðan.