\"Hinn svokallaði “sveigjanlegi vinnutími” sem var vinsæll fyrir síðustu aldamót er að verða úrelt fyrirbrigði að margra mati enda er hann oft bara afsökun fyrir því að vinna lengur.\"
Þetta skrifar athafnamaðurinn Thomas Möller í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is og bendir á að með því að tryggja að fólk komist heim á réttum tíma verði sveigjanlegur vinnutími óþarfur og “fyrirsjáanlegur” vinnutími taki við.
Thomas er þrautreyndur úr fyrirtækjarekstri og segir að þessi “sveigjanleiki” sé hugsanlega orsökin fyrir streitunni sem fólk sjái oft í upphafi og lok dags þegar vinnandi mæður og feður keyri á ofsahraða til að skila eða ná í börnin sín í og úr skóla eða íþróttatímum: \"Að auki hefur það komið fram í rannsóknum að stytting vinnutíma hefur ekki komið niður á afköstum í ákveðnum starfsstéttum,\" skrifar Thomas og bendir á að nýlega hafi opinber stofnun kannað áhrif styttri vinnutíma á afköst; greidd hafi verið föst yfirvinna á viku sem hafi leitt til þess að yfirvinna og laugardagsvinna lögðust af strax: \"Fólkið vann bara betur,\" skrifar Thomas.
Hann vill að fólk forgangsraði: \"Að vera kominn heim á réttum tíma á að vera eitt af verkefnumum á “to-do”- verkefnalista dagbókarinnar þinnar. Sumir líta á “fund með fjölskyldunni” klukkan hálf sex sem mikilvægan fund sem má ekki missa af. Víða úti á landi fer fólk heim í hádeginu og borðar mat með fjölskyldunni, hlustar á fréttirnar og fær sér smá blund. Þvílíkur lúxus og lífsgæði,\" skrifar Thomas.
Hann segir breytinguna þegar hafna: \"Google í Dublin hefur sagt starfsfólki sínu að skilja eftir tölvurnar þegar það fer heim úr vinnunni. Daimler lætur eyða tölvupósti sem kemur til starfsfólks í fríi. Mörg fyrirtæki hafa áttað sig á mikilvægi þess að fríið sé notað til að vera í fríi en ekki í vinnunni, til að hlaða batteríin og koma fersk til baka.\"
Niðurstaða Thomasar er eftirtektarverð: \"Þeir sem fara heim úr vinnunni á réttum tíma eru ekki lengur álitnir latir eða verkfælnir heldur vel skipulagðir og afkastamiklir. Í bestu fyrirtækjunum mun Parkinsons lögmálið ríkja: verkin taka þann tíma sem þeim eru gefin og klárast áður en lokatíminn er liðinn. Með þessu eykst framleiðni starfsfólks og stjórnenda og Ísland kemst aftur í hóp þeirra landa sem eru með hæsta framleiðni og þjóðarframleiðslu á unna klukkustund.\"