Sveiflur á gengi ekki óeðlilegar

Landslagið á gjaldeyrismarkaði er gjöbreytt. Eftir að fjármagnshöftin voru loks afnumin að mestur leyti um miðjan mars. Mun fleiri þátttakendur eru nú á markaðnum og væntingar markaðsaðila varðandi gengisþróun í framtíðinni hafa einnig meiri áhrif á gengi krónu í dag. Því má segja að fleiri þættir en einungis komur ferðamanna til landsins hreyfi við gengi króunnar.

Frá byrjun árs má greina meiri gengissveiflur en fram að þeim tíma hafði gengið haldist tiltölulega stöðugt í skjóli fjármagnshafta. Búast mátti við auknum sveiflum þar sem ljóst var að það styttist í afnám haftanna og viðbúið var að sú þróun héldi áfram eftir það.

Sveiflurnar hafa sennilega verið meiri en margir gerðu ráð fyrir en þær eru varla óeðlilega miklar miðað við þann langa tíma sem gengi krónunnar var innan hafta. Áður en höft voru sett á fjármagnsflutninga hérlendis voru gengissveiflur almennt meiri. Hagsjá hagfræðideildar Lansbanka Íslands fjallar nánar um þetta.   

[email protected]