Svavar tjáði sig um aldursfordóma og allt varð brjálað: „Ég á ekki orð“

Tónlistarmaðurinn ástsæli Svavar Knútur komst í hann krappan á Twitter í dag í umræðu um aldursfordóma. Umræðan hófst þegar lögfræðingurinn

Sigþrúður Þorfinnsdóttir spurði hvar væri best að djamma fyrir „gamalt fólk“ og tók fram að dóttir sín hefði bent henni á marga staði sem væru óæskilegir fyrir hana vegna aldurs.

„Aldursfordóma red flag alert.“ skrifaði Svavar og bætti við: „Getur spurt tvítugu dóttur þína hvort hún myndi líta transfólk eða múslima sömu augum á skemmtistöðum eins og fólk sem hefur það eitt til sakar unnið að fylgja gangi náttúrunnar og eldast.“

„Það er nú bara þannig að fólk á sama aldri hópast saman og skemmtir sér. Ég hef t.d lítinn áhuga á að skemmta mér með tvítugu fólki. Hefur ekkert með lífsskoðanir dóttur minnar eða meinta fordóma sem þú gefur í skyn. Hún er sennilega fordómalausasta manneskja sem ég hef kynnst.“ svaraði Sigþrúður.

Svavar svaraði: „Meina það ekki þannig, en þetta er samt algerlega samfélagslega samþykktir fordómar og það er ekkert að því að viðurkenna það. Og við gætum líka spurt okkur: af hverju er það minna normal að skemmta sér með fólki af öðrum kynslóðum en fólki af annarri kynhneigð eða trú?“

Og síðan færði hann frekari rök fyrir máli sínu: „Fordómar eru líka enginn áfellisdómur yfir einstaklingum. Þeir eru samfélagslegir. Og bara það að manneskja sé fordómalítil nema þegar kemur að samfélagslega samþykktum fordómum segir okkur bara að ah, einmitt, hér er eitthvað sem er vert að skoða betur í samfélaginu okkar.“

Ljóst er að skoðanir Svavars féllu ekki í kramið hjá öllum á Twitter, en í dag hafa margir keppst við að gagnrýna málflutning hans og gera grín að honum. Hann fékk til dæmis þessar spurningar sendar á sig:

„Ertu virkilega að bera saman transfóbíu og rasisma við það að vilja skemmta sér með fólki a sínum aldri?“

„Það er ekki sambærilegt? also það er ekkert skrítið að tvítugt fólk vilji bara djamma með jafnöldrum sínum/fólki nálægt sér í aldri, það eru ekki fordómar.“

„Af því að aldursfordómar eiga sér birtingarmyndir þar sem er ráðist á fólk og það jafnvel drepið út af því að það er ekki á réttum aldri? Þessi samlíking hjá þér, sem er snúið út úr gríni milli mæðgna, er svo ógeðslega vond að ég á ekki orð.“

Svavar svaraði mörgum spurningum og enn fleiri svör og viðbrögð bárust til hans, en ekki gest tími til að fara nánar út í öll smáatriði.