Engin tæpitunga hjá svavari og jóni sig

Það er talað af viti og reynslu í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem Jón Sigurðsson, fyrrverandi ritstjóri Tímans og Svavar Gestsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans ræða helstu fréttamál líðandi stundar.

Báðir eru eldri en tvævetur í þjóðmálum og pólitík og eiga að baki ráðherraembætti og formennsku í flokkum sínum, en að þessu sinni líta þeir yfir sviðið; ræða jafnt um nýjan forseta sem og þann gamla, fjarveru Davíðs Oddssonar við innsetningarathöfnina í þinghúsinu og leiðara hans í Morgunblaðinu í dag þar sem ekki er minnst einu orði á nýjan forseta - og þá meta þeir einnig möguleika Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á endurkomu í íslenska pólitík, en rétt eins og Davíð lét hann ekki sjá sig í Alþingishúsinu í gærdag, svo eftir var tekið.

Þeir fékagar tala enga tæpitungu í þættinum. Þar kemur skýrt fram hvað þeir Jón og Svavar fagna mjög breytingunum á Bessastöðum, hvað þeir eru vægast sagt gáttaðir á Moggaskrifum Davíðs Oddssonar og hvað þeir eiga erfitt með að sjá Sigmund Davíð leiða flokk sinn áfram.

Þá munu þessir reynsluboltar úr þjóðmálaumræðunni greina stöðu lýðræðisins í heiminum sem virðist nú um stundir fara halloka fyrir einræðistilburðum víða um lönd, ásamt því sem popúlisma og rasisma vex víða fiskur um hrygg. Hvað veldur? Þeir hafa báðir skýringar á reiðum höndum.

Ritstjórarnir hefjast klukkan 21:30 á Hringbraut í kvöld.