Tískan er umræðuefni Kvennaráðs á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld klukkan 21.30 en þar fær Björk Eiðsdóttir til liðs við sig tískufrömuðina Björgu Ingadóttur úr Spakmannsspjörum og Svövu Johansen úr 17 til að greina tískustrauma og stefnur og hver og hvað ráði þar mestu. Þeim stöllum til halds og trausts verður svo tískulöggan Arnar Gauti Sverrisson ráðgjafi og stílisti, en meðal þess sem ber á góma er jafn ólíkt efni og of grannar fyrirsætur og skeggvöxtur karla.
"Ef við sæjum svona konu úti á götu myndum við spyrja hvort við gætum aðstoðað hana," segir Svava í 17 um fyrirsætuna á einni myndinni sem skoðuð er í þættinum en þar er meðal annars spurt hvort samkynhneigðir karlmenn ráði um of hverju konur eigi að klæðast.
Og Björg úttalar sig um skeggvöxt karla: "Þessir ungu flottu menn þurfa að passa sig. Mér finnst það smart að sjá þetta á þessum eldri en ég sakna þess að sjá kjálkabreiðu og stinnu kjálkana og önnur flottheit hjá þeim ungu, en ekki skorna flotta stráka sem allt í einu eru orðnir kafloðnir. Karlmenn; þegar húðin er byrjuð að síga, látið ykkur þá vaxa skegg, ekki fyrr."
Sumsé fjörlegur þáttur fyrir konuna í okkur öllum í kvöld klukkan 21.30 í opinni dagskrá eins og allt annað efni Hringbrautar sem er einnig fáanlegt á hringbraut.is.