Svartur dagur fyrir wow air

Stór tíðindi bárust frá höfuðstöðvum WOW air í gær þar sem á fjórða hundrað starfsmönnum var sagt upp. Af þeim voru 111 fastráðnir og restin verktakar eða lausráðnir. Flugvélum hefur einnig verið fækkað úr 20 í 11. Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri og fyrrverandi forstjóri Iceland Express var gestur Lindu Blöndal í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöldi, þar sem hann ræddi þessa hópuppsögn.

Skarphéðinn sagði að í kjölfar hópuppsagna hjá Airport Associates og umfjöllunar um fjárhagserfiðleika WOW air síðustu misseri þurfi fregnir gærdagsins ekki að koma á óvart.

Svartur dagur

„Dagurinn í dag er auðvitað svartur dagur fyrir þetta fyrirtæki og alla sem að því að standa. Svona uppsagnir eru sem betur fer afar sjaldgæfar en þær eru mjög umfangsmiklar og koma í kjölfar hópuppsagna hjá Airport Associates. Fyrirtækið hefur átt erfitt fjárhagslega og er að bregðast við því. Það er verið að breyta rekstrinum í að vera nær því sem hefðbundin lággjaldaflugfélög eru, að hætta með lengri flugleiðir og einbeita sér að styttri flugleiðum með smærri flugvélum“, sagði Skarphéðinn.

Ofurlággjaldaflugfélag

Skúli Mogensen segir í tölvupósti til starfsmanna WOW air í dag að flugfélagið hyggist nú snúa aftur til róta sinna sem ofurlággjaldaflugfélag.

„Ég veit svo sem ekki hvort það sé einhver sérstakur munur á ofurlággjaldaflugfélögum og lággjaldaflugfélögum. WOW hefur verið að víkja frá þessu konsepti lággjaldaflugfélaga en það hefur komið fram í tilkynningum og viðtölum við Skúla í dag að það er verið að færa sig til baka í það módel sem er hefðbundið í svona rekstri, það er að vera samkeppnishæfir í flugfargjöldum. En til þess að geta gert það verður að halda kostnaði niðri og eitt af því er að stytta flugleiðir“, sagði Skarphéðinn.

Nýtilkomið Indlandsflug leggst af

Eitt af því sem er liður í því að skala niður í rekstrinum eru flug til Indlands, sem leggjast af snemma á næsta ári. Skúli hafði barist lengi fyrir því að fá þessa sögulegu flugleið í gegn, en hún verður nú einungis í boði í rúman mánuð, þar sem fyrsta flugið var 6. desember síðastliðinn og síðasta flugið verður 20. janúar næstkomandi.

Viðtalið í heild sinni er að finna hér:

http://www.hringbraut.is/sjonvarp/thaettir/tuttuguogeinn-21/21-hopuppsagnir-wow-air