Svartfugl: pólitík, ungt fólk og costco

Sunneva Björk Gunnarsdóttir og Viktor Orri Valgarðsson verða meðal gesta í Svartfugli í kvöld. Þau tala um húsnæðismál, laun, væntingar, barneignir, framtíðina, stjórnmálaþátttöku og annað sem brennur á þeirra kynslóð.

 
 
 
Launaþróun liðinna ára er unga fólkinu mjög óhagstæð, barnabætur eru aðrar og lægri en áður. Barneignum hefur einnig fækkað og hafa í raun aldrei verið eins fáar og nú.
 
Umræður kvöldsins verða með fjörugra móti. Þátttakendur verða Borgar Þór Einasson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Erla Hlynsdóttir framkvæmdastjóri Pírata og Steinunn Gestsdóttir aðstoðarrektor Háskóla Íslands.
 
Í stjórnmálaumræðuna mæta tveir ágætir sem láta ekki sitt eftir liggja, Logi Einarsson og Páll Magnússon.
 
Svartfugl er  á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 og er á sama tíma sendur út á Miðjunni.
Stjórnandi er Sigurjón M. Egilsson.