Svartfugl: er öryggi okkar ógnað?

Fjölbreyttur þáttur verður á dagskrá Hringbrautar í kvöld. Meðal gesta verður Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, en varnir landsins heyra undir hann. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, verður einnig í umræðu um stjórnmál dagsins. Þeir eru að hluta til sammála í þættinum og svo alls ekki. Spennandi umræða framundan.

Gylfi Magnússon hagfræðingur talar um sterka krónu, gengisfellingar, þensluna og annað sem skiptir okkur svo miklu máli.

Sú var tíðin að landsliðskonur í fótbolta börðust til að hafa landslið og það fengi landsleiki. Meðal þeirra var Kristrún Heimisdóttir, sem er gestur í þættinum, sem og Hrannar Pétursson ráðgjafi. Þau fjalla um helstu fréttir síðustu daga.

Svartfugl á dagskrá klukkan 21:00. Þátturinn er í umsjón Sigurjóns M. Egilssonar.