Svartar köngulær í kaupbæti með vínberjum á aðventunni

Tilkynningum um köngulær sem líkjast svörtu ekkjunni hefur rignt yfir Náttúrufræðistofnun Íslands eftir fréttir um að svarta ekkjan hefði mögulega fundist í vínberjapoka í Krónunni á dögunum. Sjö svartar köngulær með rauðan blett hafa fundist í vínberjapokum upp á síðkastið; ein þeirra af ekkjutegund og hinar sex af „áhugaverðri ætt stökkköngulóa“.

„Í aðdraganda jóla skjóta iðulega upp kollum hin ýmsu kvikindi sem borist hafa til landsins með fjölbreyttum innflutningi vegna jólahaldsins. Sitthvað berst til dæmis með dönsku jólatrjánum, allskyns glingri, fersku grænmeti og ávöxtum. Á aðventunni að þessu sinni ber hæst köngulær sem fólk hefur fengið í kaupbæti með amerískum vínberjum,“ segir í frétt á vef Náttúrufræðistofnunar.

Köngulærnar fundust allar á höfuðborgarsvæðinu og tilheyra tegund sem hefur ekki fundist hér á landi áður.

„Allar höfðu þær fengist í kaupbæti með amerískum vínberjum sem fólk hafði keypt í verslunum úr einni og sömu verslunarkeðjunni. Þær vöktu nokkurn ugg, svartar á lit með rauða bletti, reyndar á baki en ekki kviði. Tegund þessi er al­geng í Norður-Ameríku og hefur verið nefnd krúnukönguló (Phidippus audax).“

Tilkynningarnar byrjuðu að berast eftir fréttir um að par í Garðabæ hefði fundið könguló sem líktist svörtu ekkjunni í vínberjapoka. Vínberin voru frá Norður-Ameríku og köngulóin reyndist vera krúnukönguló sem er algeng á þeim slóðum.

Svarta ekkjan er sam­heiti yfir um þrjá­tíu tegundir af ekkju­köngu­lóm en engar líkur eru á að þær þrífist í ís­lensku lofts­lagi eða nái hér fót­festu.

„Hins vegar gerist það stundum að ekkju­köngu­lær berist til landsins með varningi, oftast væntan­lega með vín­berjum inn­fluttum frá Norður-Ameríku. Í safni Náttúru­fræði­stofnunar Ís­land eru varð­veitt alls 13 ein­tök sem hingað hafa borist. Flest hafa fundist á höfuð­borgar­svæðinu, auk þess á Grundar­tanga, Sel­fossi og Húsa­vík. Það elsta fannst í Reykja­vík árið1998 en öll önnur til­felli eru frá þessari öld.“

Grein Náttúru­fræði­stofnunar Ís­lands má lesa mér.