Svarta ekkjan dvelur hjá ungu pari í garðabæ og borðar orma: myndband

Anya Lkhagvadorj og Jón Helgi Steingrímsson keyptu á dögunum vínberjaklasa í Krónunni í Garðabæ. Þann sama dag höfðu þau borðað nokkur ber úr pokanum. Í gærkvöldi ætluðu þau að gæða sér á fleiri berjum þegar í ljós kom að ein eitraðasta könguló heims var í pokanum, sjálf svarta ekkjan.

Í samtali við Vísi segir Anya.

„Ég var búin að taka berin úr pokanum og var að skola þau í skál þegar ég sá svarta fætur skríða fram.“

Þau settu síðan svörtu ekkjuna í krukku. Daginn eftir keypti Jón orma í dýrabúð til að gefa köngulónni að éta. Jón Helgi hvetur fólk í ljósi þessarar reynslu að skola vel öll ber. Anya segir:

„Ég ætla að bíða aðeins þar til ég fæ mér aftur vínber.“