Báðir deilendur í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins annars vegar og VR og Flóabandalagsins hins vegar segja enga ástæðu til að halda áfram við viðræðum, svo mikið beri í milli þeirra. Viðræðunum hefur verið slitið.
Innanbúðarmenn í Flóabandalaginu segja að þráðurinn verði vart tekinn upp aftur fyrr en í næstu viku; hugmyndir SA um breytingar á vinnutímafyrirkomulagi séu af því tagi að engin ástæða sé til að ræða áfram á forsendum atvinnurekenda. Undir þetta hefur forysta VR tekið.
SA hefur aftur á móti fullyrt að samtökin séu reiðubúin að semja um meiri launahækkanir en boðnar hafa verið í samfelldri sögu þeirra eða um 24% hækkun á launalið á næstru þremur árum; það sé jafnvel lengra seilst en fulltrúar Seðlabankans og helstu greinendum hagkerfsisins telja ráðlegt. Þessu boði hafi verkalýðsforkólfar hafnað "án þess að leggja fram nokkrar raunhæfar lausnir um nýjan kjarasamning," eins og segir í tilkynningu frá SA.
Það stefnir því allt í auknar verkfallsaðgerðir á vinnumarkaði þar sem tugþúsundir landsmanna leggja niður vinnu á næstu vikum.